Til að komast lengra þarftu að vita í hvaða bæ í USA mamma bjó = lykilorðið :)
Mamma okkar heitir María Blöndal og pabbi okkar Gunnar Árnason
Nafnið Hafdís merkir heilladís hafsins.
Nafnið Anja merkir Anna litla, rússnesk smækkunarmynd af Anna, en nafnið Anna merkir náð, yndi, miskunn og líkn.
Nafnið Karítas merkir kærleikur.
Nafnið Eva merkir líf.
HAFDÍS ANJA ER MEYJA OG HÉR KEMUR LÝSING Á BARNI Í MEYJUMERKINU:
23. ágúst - 22. september
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.
Þessi lýsing á nú bara orðið nokkuð vel við hana Hafdísi Önju nema að hún er alltaf hress og með mikið skopskyn :)
KARÍTAS EVA ER FISKUR OG HÉR KEMUR LÝSING Á BARNI Í FISKAMERKINU:
19. febrúar - 20. mars
Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.
Það verður spennandi að sjá hvort þetta kemur til með að eiga við Karítas Evu :)
Fjöldi gesta síðan 8.október 2002
Who links to my website?
